HSS
HSS

Fréttir

Bláa lónið fyrir mistök á svartan lista
Þriðjudagur 3. september 2002 kl. 09:02

Bláa lónið fyrir mistök á svartan lista

Breska blaðið Guardian birti mynd af Bláa lóninu í síðustu viku með grein sem fjallaði um menguðustu staði jarðar. Nú hefur blaðið birt afsökunarbeiðni, en blaðamaðurinn sem skrifaði greinina fór og skoðaði lónið sjálfur eftir að mótmæli bárust frá Íslandi.

Myndirnar sem birtar voru voru af áldósum í Kóreu, sjófugli þöktum olíu í Brasilíu, eyddum skógi í Kína, börnum sem syntu eftir rusli á Filippseyjum, brenndum dekkjum á spáni og Bláa lóninu."Kannski hefði nafnið átt að segja okkur eitthvað, það heitir ekki svarta eða gula lónið," segir í greininni. Símtölin byrjuðu að berast daginn eftir að greinin birtist. Og fax og tölvupóstur. Flugleiðir lýstu yfir óánægju. Og íslenski sendiherrann í London taldi að alvarlegt tjón hefði hlotist af greininni, en Bláa lónið væri eitt besta dæmið í heiminum um endurnýjanlega orku.

"Það er engin afsökun fyrir mistökunum," segir í greininni í dag. "Myndirnar komu frá safni Sameinuðu þjóðanna en þar voru bæði myndir af jákvæðum og neikvæðum hlutum. Líklega höfum við litið á reykinn sem steig upp og álitið að um mengun væri að ræða."

Blaðið heldur áfram að afsaka mistökin sem þeir játa að séu mjög alvarleg þar sem um helsta aðdráttarafl ferðamanna sé að ræða og ferðamenn séu æ mikilvægari þáttur í hagkerfi Íslands.
Bílakjarninn
Bílakjarninn