HSS
HSS

Fréttir

Bláa lónið fær Bláfánann í 14. sinn
Bláfáninn er alþjóðleg viðurkenning sem veitt er til að stuðla að verndun umhverfis smábátahafna og baðstranda.
Miðvikudagur 22. júní 2016 kl. 06:00

Bláa lónið fær Bláfánann í 14. sinn

Bláfáninn var dreginn að húni í Bláa Lóninu í 14. sinn á dögunum. Fánanum hefur Bláa Lónið flaggað Bláfánanum árlega síðan árið 2002. Bláfáninn er alþjóðleg viðurkenning sem veitt er til að stuðla að verndun umhverfis smábátahafna og baðstranda. 

Salome Hallfreðsdóttir, verkefnisstjóri Bláafánans hjá Landvernd, afhenti Bláfánann fyrir hönd Landverndar. Í máli hennar kom meðal annars fram að Bláa Lónið er einn tveggja staða á Íslandi sem flaggar Bláfánanum árið um kring.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Meginmarkmið Bláfánaverkefnisins eru bætt umhverfisstjórnun, góð hreinlætisaðstaða, gæði vatns, gott aðgengi að upplýsingum um þjónustu á viðkomandi svæði og slysavarnir. Mikilvægur liður í  Bláfánaverkefninu er að efla almenna umhverfisvitund og er það gert með lifandi fræðslu og upplýsingum um náttúru og viðkvæm svæði á Bláfánastöðum.