Bláa lónið fær Bláfánann
Bláa lónið mun taka á móti Bláfánanum fimmtudaginn 5. júní nk. Meðal gesta við afhendinguna verður Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra. Bláa lónið verður fyrsti baðstaður á Íslandi til að taka á móti Bláfánanum. Bláfáninn er alþjóðleg viðurkenning fyrir baðstrandir og smábátahafnir sem vinna vel að öryggismálum, umhverfisnefnd og fræðslu.