Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Bláa Lónið eitt af undrum veraldar samkvæmt National Geographic
Miðvikudagur 1. febrúar 2012 kl. 16:10

Bláa Lónið eitt af undrum veraldar samkvæmt National Geographic

Bláa lónið er einn af mögnuðustu stöðum veraldar að mati hins virta bandaríska tímaritsins National Geographic. Það er meðal 25 staða sem eru teknir fyrir í sérútgáfu tímaritsins um undur veraldar.

Umfjöllun blaðsins er skipt í þrjá hluta eftir því hvort staðirnir tengist lofti, láði eða legi. Meðal magnaðra staða, að mati ritstjórnar tímaritsins, má nefna Saharaeyðimörkina og norsku firðina, Baikalvatn í Rússlandi og eldfjöllin á Hawaii, norðurljósin og síðast en ekki síst Bláa lónið. Bláa lónið er sagt vera paradís jarðvarmavatns, blágræn veröld sem sé umkringd svörtu hrauni sem minni mest á tunglið.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024