Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Bláa lónið byggir þjónustuhús við bílastæði
Þriðjudagur 7. febrúar 2012 kl. 11:08

Bláa lónið byggir þjónustuhús við bílastæði

Bæjarstjórn Grindavíkur samþykkti á fundi sínum í síðustu viku erindi frá Bláa lóninu sem óskaði eftir breytingu á deiliskipulagi við Bláa lónið í Grindavík sbr. uppdrætti og greinargerð dags. desember 2011 unnið af Basalt arkitektum. Í því felst m.a. að byggja þjónustuhús við bílastæði sem jafnframt verður upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn og töskugeymsla.

Heilsulind Bláa lónsins hefur verið starfrækt á núverandi stað frá 1999. Í deiliskipulagi fyrir þjónustureitinn frá 1996 var eftirfarandi starfsemi skilgreind: Baðstaður, meðferðarstöð og hótelbygging. Á lóð var skilgreint tjaldstæði við bílastæði gesta. Lækningalind (meðferðarstöð) er þegar byggð á aðliggjandi reit skv. deiliskipulagi frá 2002. Því er sú starfsemi ekki á nýju deiliskipulagi. Tjaldstæði er í Grindavíkurkaupstað og því ekki þörf á slíkri þjónustu á athafnasvæði Bláa lónsins hf. Uppbygging hótels við Heilsulindina er fyrirhuguð á sama stað og deiliskipulagið frá 1996 kveður á um. Ný aðstaða fyrir heilsulindarþjónustu er fyrirhuguð sem skal tengjast hótelinu annars vegar og núverandi Heilsulind hins vegar.

Niðurstaða ítarlegra kannana sýna að mikil þörf er fyrir þjónustuhús við bílastæði Heilsulindarinnar. Stór hluti gesta kemur í hópferðarbílum sem koma mislangt að og safnast saman á bílastæðunum áður en lengra er haldið. Húsið verður upplýsingamiðstöð ferðamanna fyrir Reykjanes, töskugeymsla og snyrtingar. Sl. tvö ár hefur töskugeymsla í einingahúsi úr timbri verið rekin á staðnum á bráðabirgðabyggingarleyfi bæjaryfirvalda. Í deiliskipulagi er ný lóð innan reitsins skilgreind undir þessa þjónustu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024