Bláa lónið besta náttúrulega heilsulind í heimi

Þetta er í annað skipti sem verðlaunin eru veitt, en í fyrra varð Bláa Lónið í áttunda sæti.
Þetta mikla stökk er staðfesting á því að Bláa Lónið hefur unnið sér sess sem einstök heilsulind á heimsmælikvarða, en lesendur gáfu Bláa Lóninu einmitt hæstu einkunn fyrir einstaka upplifun í einstöku náttúrulegu umhverfi. Þá hefur þróun nuddmeðferða ofan í lóninu og þróun á Blue Lagoon Iceland húðvörum einnig átt sinn þátt í að auka heildarupplifun gesta Bláa Lónsins - heilsulindar.

Tímaritið Condé Nast Traveller er eitt virtasta ferðatímarit í heimi og tilheyrir hinni þekktu tímaritaútgáfu Condé Nast Magaine, sem gefur meðal annars út tímaritin Vogue, Glamour og Vanity Fair.
Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Mandarin Oriental Hyde Park í London, mánudaginn 24. janúar