Bláa Lónið – lækningalind opnuð í dag
Bláa Lónið – lækningalind verður formlega opnuð í dag, föstudaginn 10. júní. Í tilefni opnunarinnar munu Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra, og Eðvarð Júlíusson, stjórnarformaður Bláa Lónsins hf, afhjúpa áletraða hraunhellu sem táknar upphaf framkvæmda við lækningalindina, en þeir losuð helluna þann 7. janúar 2004.
BLUE LAGOON meðferð við psoriasis er einstök á heimsvísu, mjög árangursrík og án aukaverkana. Meðferðin er nú alþjóðlega þekkt og hafa meðferðargestir frá 19 þjóðlöndum heimsótt Bláa Lónið lækningalind á undanförnum árum eingöngu til meðferðar við psoriasis. Lækningalindin er eina húðlækningastöðin í heiminum, sem einbeitir sér eingöngu að rannsóknum og meðferð á psoriasis.
Hin nýja og glæsilega lækningalind, sem tekur við af bráðabirgðahúsnæði, er staðsett á miðri hraunbreiðu á Reykjanesinu þar sem kraftmikið náttúrulegt umhverfi hefur endurnærandi áhrif á líkama og hug. Böðun í BLUE LAGOON jarðsjó sem þekktur er fyrir lækningamátt og einstök virk efni: steinefni, kísil og þörungar er mikilvægasti þáttur meðferðarinnar og er lón lækningalindarinnar sérhannað með þarfir meðferðargesta í huga. Rúmgóð innilaug fyllt BLUE LAGOON jarðsjó er einnig í lækningalindinni.
Góð aðstaða er á meðferðarsvæði, en þar er m.a. sérútbúið hvíldarherbergi, þar sem gestir geta slakað vel á eftir böðun í jarðsjónum og ljósameðferðir. Einnig eru þar nuddherbergi og rúmgóð herbergi fyrir skoðanir og læknisviðtöl.
Fimmtán nýtískulega hönnuð, björt og rúmgóð tveggja manna gistihergi eru í boði fyrir gesti lækningalindarinnar. Rúmgóður veitingasalur er í lækningalind ásamt setustofu með sjónvarpi þar sem gestir geta slakað á og notið samverunnar. Gestir hafa einnig aðgang að vel búnum tækjasal þar sem stunda má líkamsrækt og skjólgóðum garði til útiveru og hvíldar.
Lækningalindin, sem er samvinnuverkefni íslenskra stjórnvalda og Bláa Lónsins hf stórbætir þjónustu við íslenska psoriasissjúklinga og er tímamótaverkefni í heilsutengdri ferðaþjónustu á Ísland .
Jón Þrándur Steinsson, húðlæknir er yfirlæknir lækningalindarinnar og Ragnheiður Alfreðsdóttir er hjúkrunarforstjóri