Björgvin vill 1. sætið
Í síðustu tveimur alþingiskosningum hefur Björgvin G, Sigurðsson leitt lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Hefur framboði jafnaðarmanna í Suðurkjördæmi farnast vel í þeim kosningum og var Samfylkingin eftir siðustu kosningar aftur stærsti flokkurinn í kjördæminu.
Björgvin sem er alþingismaður og formaður allsherjar-og menntamálanefndar, hefur hug á því að halda sama striki og eftir að hafa ráðfært sig við stuðningsmenn og félaga í kjördæminu ákvað hann að gefa áfram kost á sér.
„Ég gef kost á mér til þess að leiða lista flokksins í Suðurkjördæmi og sækist eftir 1. sæti í næsta flokksvali,“ sagði Björgvin í en það kjör Samfylkingarinnar fram fer 16.-17. nóvember næstkomandi.