Fréttir

Björgvin Halldórsson tekur á móti gestum í Hljómahöll
Miðvikudagur 23. ágúst 2017 kl. 14:26

Björgvin Halldórsson tekur á móti gestum í Hljómahöll

- Gestum gefst tækifæri að hitta Björgvin og spjalla við hann

Björgvin Halldórsson tekur á móti gestum og gangandi á sýningunni Þó líði ár og öld sem opnuð var í lok árs 2016 á Rokksafni Íslands í Hljómahöll.

Þetta er kjörið tækifæri til að hitta sjálfan Bó Halldórs í eigin persónu og fá sér kaffi með honum. Sýningin Þó líði ár og öld er stórglæsileg og hefur svo sannarlega slegið í gegn hjá landsmönnum! Það er alls ekki ólíklegt að Bó leyni á fjölmörgum sögum og fróðleiksmolum sem aldrei rötuðu inn í sýninguna...

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Björgvin verður á staðnum á milli 15:00-18:00 laugardaginn 2. september.

Á sýningunni Þó líði ár og öld um Björgvin Halldórsson er farið um víðan völl og fjallað er ítarlega um hinar ýmsu hliðar Björgvins. Eins og flestum er kunnugt hefur Björgvin verið einn ástsælasti og vinsælasti söngvari landsins um árabil og sungið með hljómsveitum eins og Bendix, Flowers, Ævintýri, Hljómum, Brimkló, Change, HLH flokknum, Ðe lónlí blú bojs og mörgum fleiri.

Björgvin hefur líka sinnt ýmsum störfum tengdum tónlist og fjölmiðlum í gegnum tíðina og má til dæmis nefna að hann starfaði sem markaðsfulltrúi á Íslensku auglýsingastofunni um tíma, var útvarpsstjóri Stjörnunnar og Bylgjunnar, framleiðandi og sjónvarpsstjóri Bíórásarinnar sem og verið rödd Stöðvar 2 um árabil. Einnig hefur Björgvin verið útgefandi, upptökustjóri, sinnt stjórnunarstörfum hjá hinum ýmsu fagfélögum tónlistarmanna og verið markaðsstjóri á veitingahúsinu Broadway.

Fjallað er um margar hliðar Björgvins á sýningunni og þeim gerð skil með hjálp tækninnar. Á sýningunni segir Björgvin sögur af ferli sínum og aðrir segja sögur af honum. Björgvin er mikill safnari og á sýningunni má finna fjölmarga muni sem hann hefur haldið til haga frá ferli sínum og samstarfsmanna í gegnum tíðina. Þar á meðal er hluti gítarsafns hans á sýningunni, plaköt allt frá fyrstu tónleikum til dagsins í dag, gullplötur, textablöð, ógrynni ljósmynda og myndbanda og þannig mætti lengi telja. Undirbúningur sýningarinnar stóð yfir í tæpt ár og er óhætt að sýningin sé öll hin glæsilegasta!

AÐGANGSEYRIR: 1500 kr. Aðgangseyrir fyrir eldri borgara/öryrkja: 1200 kr. Frítt er fyrir 16 ára & yngri sem eru í fylgd með fullorðnum.
OPNUNARTÍMI ROKKSAFNS ÍSLANDS: 11:00-18:00 alla daga