Björgunarþyrlurnar komnar aftur frá Afríku
Þrjár björgunarþyrlur varnarliðsins og flestir þeirra 65 liðsmanna björgunarsveitarinnar og annarrar liðssveita varnarliðsins sem sendir voru með þeim til tímabundinna starfa í Sierra Leone og Líberíu sneru aftur til Keflavíkurflugvallar síðastliðinn mánudag. Þyrlurnar voru fluttar utan með skömmum fyrirvara með flutningaflugvél af gerðinni C-5 Galaxy 13 júlí s.l og voru tilbúnar til starfa átta klukkustundum eftir lendingu í Sierra Leone. Þar veitti björgunarsveitin liðsmönnum Bandaríkjahers sem önnuðust mat á ástandinu í Líberíu og sendiráðsstarfsmönnum í Monrovíu aðstoð og flutning og annaðist sjúkraflug á meðan á Afríkudvölinni stóð.Varnarliðsmennirnir sögðust fegnir að koma heim eftir 50 daga strangt úthald og kvaðst yfirmaður björgunarsveitarinnar, David Duke undirofursti, feginn að sjá þá komna heilu og höldnu til baka, segir í fréttatilkynningu frá Varnarliðinu.
Ljósmynd: Varnarliðið/Heather Purcell: Varnarliðsmenn stíga frá borði C-5 herflutningaflugvélarinnar sem flutti þá heim ásamt björgunarþyrlunum þremur á Keflavíkurflugvelli s.l. mánudag.






