Björgunarsveitirnar treysta á bæjarbúa
- flugeldamarkaðir í björgunarsveitahúsum í öllum bæjarfélögum Suðurnesja
Flugeldamarkaður Björgunarsveitarinnar Suðurnes er sem fyrr í húsi björgunarsveitarinnar að Holtsgötu 51 í Reykjanesbæ. Markaðurinn er opinn fimmtudag og föstudag kl. 13:00 - 22:00. Laugardaginn 30. desember er opið 10:00 til 22:00 og sunnudaginn 31. desember, gamlársdag, er opið kl. 10:00 til 16:00.
Félagar í björgunarsveitinni voru mættir snemma í hús á miðvikudagsmorgun til að setja upp flugeldasölustaðinn en úrvalið hefur aldrei verið meira en nú. Mikið af nýjum vörum, sem ekki hafa verið áður í boði, eru nú í hillum flugeldasölunnar. Fjölskyldupakkar af ýmsum stærðum og skottertur í úrvali.
Björgunarsveitin Suðurnes treystir á stuðning íbúa í Reykjanesbæ fyrir áramótin en flugeldasalan er stærsta einstaka fjáröflun björgunarsveitarinnar og á að standa undir rekstri sveitarinnar allt næsta ár. Verkefnum björgunarsveita hefur fjölgað mikið á undanförnum árum og fjölmörg verkefni á hverju ári eru einnig mjög tímafrek og kalla á fjölmennt lið björgunarsveitarfólks.
Allar björgunarsveitir á Suðurnesjum treysta á flugeldasölu nú fyrir þessi áramót. Þannig er björgunarsveitin Þorbjörn með flugeldasölu í björgunarsveitarhúsinu í Grindavík, Skyggnir í Vogum er með flugeldasölu og einnig Sigurvon í Sandgerði. Þá er björgunarsveitin Ægir með flugeldasölu í samstarfi við Kiwanisklúbbinn Hof í Garði. Allar flugeldasölur björgunarsveitanna eru í björgunarsveitarhúsum í viðkomandi sveitarfélögum.
