HSS
HSS

Fréttir

Björgunarsveitir aka á litaðri olíu
Laugardagur 3. júní 2006 kl. 23:55

Björgunarsveitir aka á litaðri olíu

Félagar í Slysavarnafélaginu Landsbjörg fagna afgreiðslu frumvarps um breytingu á lögum um olíugjald. Samkvæmt niðurstöðu Alþingis er björgunarsveitum heimilt að nota, á sérútbúin tæki til björgunarstarfa, litaða olíu. Þetta er gríðarlegur sparnaður fyrir björgunarsveitir um allt land og ekki síst þeim sem eru á fámennari svæðum þar sem fjáröflun til starfsins er erfið.

Slysavarnar og björgunarsveitarfók í landinu stendur í þakkarskuld við alþingismenn sem að unnu að þessari farsælu lausn málsins. Í samþykktinni fellst mikil viðurkenning á starfi sjálfboðaliða í íslenskum björgunarsveitum, segir á vef landssamtaka björgunarsveita.

Mynd: MMC Pajero Björgunarsveitarinnar Ægis í Garði.

Bílakjarninn
Bílakjarninn