Björgunarsveitir aðstoða við fráveituframkvæmdir í Vogum

Undanfarna mánuði hefur Ellert Skúlason ehf unnið að endurbótum á fráveitu í sveitarfélaginu Vogum. Í gærmorgun var unnið að því að leggja sjólögn útrásar við hafnargarð og þurftu fjölmargir að koma að því verki. Björgunarsveitir í Garði, Sandgerði, Grindavík og Vogum komu að verkefninu með verktaka með því að leggja til báta og starfsfólk í þessa umfangsmiklu aðgerð. Á þennan hátt vildi verktakinn leggja sitt af mörkum til að styrkja björgunarsveitir á Suðurnesjum. Áður var búið að leggja útrás frá suðurhluta byggðar út í Vogavík.
Lögnin var lögð rúmlega 400 metra frá landi og var framkvæmdunum lokið stuttu eftir hádegi í gær. Nú tekur við frágangur á lögnum og mun þeirri vinnu verða lokið fljótlega. Með þessu hefur útrásum verið fækkað úr fjórum í tvær.  Eftir framkvæmdirnar munu fráveitumál í Vogum standast ströngustu kröfur í umhverfismálum og nú geta íbúar sveitarfélagsins notið þess að eiga hreinar fjörur til gönguferða og útivistar.







 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				