Björgunarsveitin treystir á flugeldasöluna
Flugeldasala Björgunarsveitarinnar Suðurnes hófst í gær með pompi og prakt og í kvöld verður boðið upp á flugeldasýningu í Grænásbrekku eins og fyrri ár. Kvennasveitin Dagbjörg bauð upp á kaffi og með því á meðan sýningu stóð en björgunarsveitarmenn á Suðurnesjum hafa staðið að sölu flugelda allt frá árinu 1970. Afrakstur flugeldasölunnar stendur björgunarsveitinni fyrir þrifum en Gunnar Stefánsson, stjórnarmaður í Björgunvarsveitinni Suðurnes, segir sífellt harðnandi samkeppni á flugeldamarkaði gera sveitinni erfitt fyrir. °
Metmánuður
„Við keyrðum mannskapinn út í desember og þetta er búið að vera nokkuð erfitt hjá okkur,“ sagði Gunnar en mikið hefur mætt á björgunarsveitunum á Suðurnesjum í jólamánuðinum. Töluvert hefur verið um óveðursútköll og svo hefur strandið við Hvalsnes ekki farið fram hjá neinum. „Ég man ekki eftir annari eins hrynu í desember. Þetta er örugglega metmánuður hjá okkur í útköllum, ég man ekki eftir svona fjölda í langan tíma og er maður nú búinn að vera lengi í þessu,“ sagði Gunnar. Kostnaðurinn við öll þessi útköll er gífurlegur og þá horfa menn til flugeldasölunnar.
Hvar voru fjallajepparnir?
Um 70% af tekjum björgunarsveitarinnar koma inn í gegnum flugeldasölu og hætt er við því að þær tekjur skerðist með innkomu einkaaðila á flugeldamarkaðinn. Einkaaðilar hafa jafnvel gengið svo langt að nýta sér einkennisliti björgunarsveitarinnar, rauða litinn, til að laða að viðskiptavini. „Í þessum annasama desembermánuði varð ég þess ekki var að einkasöluaðilar á flugeldamarkaði mættu almenningi til aðstoðar á sínum stóru fjallajeppum,“ sagði Gunnar og lét vel í það skína að hann væri fjarri því ánægður með að einkaaðilar væru að seilast í heilstu fjáröflun björgunarsveitarinnar. „Hagnaðurinn fer í þeirra eigin vasa en ágóðinn af flugeldasölu björgunarsveitarinnar fer í almannaþágu,“ sagði Gunnar.
Helst í hendur
Gunnar segir að jafnan haldist jólasalan í hendur við flugeldasöluna og segir Landsbjörg hafa byrgt sig vel upp af flugeldum þetta árið. „Við höfum gert ráðstafanir til þess að mæta aukinni sölu. Í ár höfum við aukið úrvalið í kökum og skotkökum og svo er alltaf eitthvað nýtt að koma inn. Trölli heitir nýjasti fjölskyldukassinn okkar og er hann stærstur í þeirri röð. Þetta er fyrsta árið sem Trölli er í sölu og hann á örugglega eftir að reynast mörgum „sprengjusérfræðingum“ vel,“ sagði Gunnar. Flugeldasala björgunarsveitarinnar var þokkalega góð í fyrra en Gunnar vonast eftir sambærilegri sölu ef ekki betri í ár. Höfuðstöðvar Björgunarsveitarinnar Suðurnes eru að Holtsgötu 51 í Njarðvík og þá verður einnig útibú við Reykjaneshöllina. Nú er flugeldavertíðin hafin en Björgunarsveitin linnir ekki látum í öðrum útköllum. Enn verða menn við strandstað á Hvalsnesi, þá aðallega björgunarsveitarmenn frá Sandgerði, og sveitin ávallt í viðbragðsstöðu. „Við vonumst til þess að íbúar Reykjanesbæjar standi saman og standi við bakið á sinni björgunarsveit svo við getum verið til taks þegar þess þarf fyrir okkar bæjarbúa,“ sagði Gunnar að lokum.
Flugeldasala Björgunarsveitarinnar Suðurnes verður opin í dag til kl. 22 og næstu daga fram að gamlársdegi. Á gamlársdag verður opið í sölustöðum björgunarsveitarinnar frá kl. 10:00-16:00.