Mánudagur 17. október 2005 kl. 16:35
Björgunarsveitin Þorbjörn opnar vefsíðu

Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík hefur opnað nýja og glæsilega vefsíðu á slóðinni www.thorbjorn.is. Þar má lesa fréttir af starfsemi sveitarinnar, skoða upplýsingar um tækjabúnað, sjá félagatal ásamt ýmsu öðru.
Inni á síðunni er sýnd dagskrá vikunnar í starfseminni og einnig er þar aðgangur að vefpósti félagsmanna. Það er fyrirtækið Allra átta sem sá um gerð síðunnar.