Björgunarsveitin Þorbjörn fær viðurkenningu fyrir öflugt sjálfboðaliðastarf
Í tilefni þess að árið 2011 er tileinkað sjálfboðaliðum samþykkti bæjarstjórn Grindavíkur tillögu frístunda- og menningarnefndar að Björgunarsveitinni Þorbirni verði veitt viðurkenning fyrir öflugt sjálfboðaliðastarf í þágu Grindvíkinga.
Bæjarstjórn felur sviðsstjóra frístunda- og menningarmála jafnframt að kalla eftir tilnefningum frá félagasamtökum um einstaklinga sem hafa sýnt óeigingjarnt sjálfboðastarf í þágu samfélagsins í Grindavík og veita þeim viðurkenningar á gamlársdag.
Grindavík.is