Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Björgunarsveitin Ægir safnar gömlum GSM-símum
Mánudagur 29. desember 2008 kl. 11:18

Björgunarsveitin Ægir safnar gömlum GSM-símum


Björgunarsveitin Ægir í Garði stendur þessa dagana fyrir söfnun á gömlum GSM-símum í Garðinum. Söfnun á símunum er liður í fjáröflunar- og endurvinnsluátaki Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem gengur undir nafninu „Svaraðu kallinu“.

Gömlu GSM-símarnir verða sendir til endurvinnslu þar sem þeir öðlast nýtt líf og verða sendir til þróunarríkja í Afríku og Asíu.

Björgunarsveitir safna flestar símum á flugeldamörkuðum sínum en þar sem Björgunarsveitin Ægir er ekki með flugeldasölu þá hefur söfnunarkassa verið komið fyrir í verlsun SamkaupStrax í Garðinum. Þar verður kassinn fram á þrettándann og eru Garðbúar og velunnarar björgunarsveitarinnar hvattir til að koma gömlum GSM-símum í söfnunarkassann. Um er að ræða mikilvæga fjáröflun fyrir Björgunarsveitina Ægi og jafnframt þjóðþrifamál þar sem gamlir GSM-símar öðlast nýtt líf í fjarlægu landi.



Oddur Jónsson, formaður Björgunarsveitarinnar Ægis með söfnunarkassann sem settur hefur verið upp í verslun SamkaupStrax í Garði.

Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024