Björgunarsveitarmenn á fullu víða um bæinn
Liðsmenn Björgunarsveitarinnar Suðurnes hafa farið í á annan tug útkalla í morgun vegna óveðursins. Víða hafa losnað þakplötur og fleira.
Þessar myndir voru teknar af björgunarsveitarmönnum við Austurgötu í Keflavík í morgun. Björgunarsveitin Ægir í Garði er í viðbragsstöðu og mun koma Suðurnesi til aðstoðar ef þarf.
Rétt í þessu voru björgunarsveitarmenn að fara að Hóteli Keflavík en þar höfðu losnað þakplötur.
VF-myndir/hilmarbragi.