Björgunarsveit kölluð út í Grindavík
Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík var kölluð út í morgun þegar tilkynnt var um laust forsegl á skútu í höfninni. Sveitin fór á staðinn og gekk frá seglinu og notaði tækifærið og bætti við belgjum milli skútu og bryggju til að fyrirbyggja tjón.
Að því loknu var ekinn hringur til að athuga hvort veðrið sem gengur yfir landið nú um helgina hefði gert meiri usla í bænum en svo reyndist ekki vera.