Reykjanesbær aðventugarðurinn
Reykjanesbær aðventugarðurinn

Fréttir

Björgunarsveit aðstoðar bíleiganda við Ísólfsskála
Laugardagur 14. ágúst 2004 kl. 10:56

Björgunarsveit aðstoðar bíleiganda við Ísólfsskála

Síðdegis í gær óskaði lögreglan í Keflavík eftir aðstoð Björgunarsveitarinnar Þorbjörns í Grindavík vegna bifreiðar sem ekið hafði út af Ísólfsskálavegi, í hrauninu skammt austan við Ísólfsskála.  Ekki var vitað um hvernig bifreið var að ræða en vitað var að vegfarandi á jeppa hafði reynt að aðstoða fólkið án árangurs.  Var því ákveðið að senda bæði Patrol jeppa og MAN trukk sveitarinnar á vettvang.  Í ljós kom að um var að ræða fólksbifreið og sluppu ökumaður og farþegar ómeiddir.  Vel gekk að draga bifreiðina upp á veg með spilinu á Patrol jeppanum.  Bifreiðin var nokkuð skemmd og aðstoðuð björgunarmenn fólkið að gera hana ökuhæfa að nýju og fylgdu síðan fólkinu til Grindavíkur.
Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
VF jól 25
VF jól 25