Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Björgunarskipið fékk á sig hnút við björgunina í Grindavík
Þriðjudagur 18. febrúar 2003 kl. 14:51

Björgunarskipið fékk á sig hnút við björgunina í Grindavík

Björgunarsveitin Þorbjörn hefur sent frá sér samantekt vegna björgunar á flutningaskipinu Trinket í innsiglingunni til Grindavíkur í gær. Mikill sjógangur var við Grindavík þegar atvikið átti sér stað og fékk Oddur V. Gíslason m.a. á sig hnút á leiðinni á slysstaðinn.
Eftirfarandi er samantekt björgunarmanna frá því í gær en hún birtist á vefsvæði Slysavarnafélagsins.

Oddur V. Gíslason kemur flutningaskipi til bjargar

Klukkan 12:47 fékk Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík útkall F-1 rauður vegna vélarvana skips í innsiglingunni við Grindavík. Útkall F-1 rauður er hæsta viðbragðsstig í útkalli björgunarsveita - neyðarútkall. Björgunarsveitin Þorbjörn sendi strax björgunarskipið Odd V. Gíslason af stað auk þess sem björgunarmenn fóru einnig af stað landleiðina með fluglínutækin en líkur voru á að skipið ræki á land. Að beiðni Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar voru bjsv. Skyggnir í Vogum og bjsv. Suðurnes í Reykjanesbæ settar í viðbragðsstöðu ef þörf væri á meiri mannskap auk þess sem svæðisstjórn björgunarsveita á Suðurnesjum kom saman. Þá fór línuskipið Skarfur GK einnig út til aðstoðar auk þess sem hafnsögubáturinn Villi var á vettvangi.
Ms. Trinket sem er leiguskip Eimskips hf., óskaði aðstoðar er það var á útleið frá Grindavík eftir að hafa lestað um 1300 tonn af loðnumjöli hjá loðnuverksmiðju Samherja hf. Ms. Trinket er 82 metra langt og um 8 metra breitt.
Veður í Grindavík: SA 10-12 m/s og rigning, ölduhæð 5 metrar og brim við innsiglingu.
Um sjö mínútum frá útkalli, kl. 12:54 var björgunarskipið Oddur V. Gíslason kominn að Trinket. Mikill sjógangur var við Grindavík og fékk Oddur V. Gíslason á sig hnút á útleiðinni.
Ms. Trinket hafði snúist í innsiglingunni og sneri stefninu til norðvesturs og rak skipið vestur úr innsiglingarrennunni. Skipið var þá úti á djúpsundinu svokallaða sem er utan við Sundboðann.
Þegar bs. Oddur V. Gíslason kom að skipinu tilkynnti skipstjóri þess að leki væri kominn að skipinu og að olía læki út og stýri væri óvirkt. Voru skipverjar á Trinket tilbúnir með dráttartaug og tók skamma stund að koma henni yfir í björgunarskipið þrátt fyrir mikinn sjógang. Oddur V. Gíslason byrjaði á að draga skipið til austurs inn í innsiglingarrennuna þar sem skipið átti stutt eftir upp í brimið. Þegar það hafði tekist var stefnan tekin til hafnar. Þar sem aldan kom undir skipið að aftan lét það mjög illa í drætti. Bs. Oddur V. Gíslason var kominn með skipið að bryggju í Grindavík kl. 13:15. Þyrla Landhelgisgæslunnar var komin á vettvang um svipað leyti.
Slökkvilið Grindavíkur var kallað út til að dæla sjó úr skipinu auk þess sem kafari vinnur að því að þétta göt á skipinu. Björgunarsveitin Þorbjörn er með tvo slöngubáta og mannskap við þær aðgerðir.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024