Björgunarskip sótti veikan skipverja
Björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Oddur V. Gíslason í Grindavík, var kallað út kl 01:30 í nótt til að sækja sjúkan skipverja um borð í togara sem staddur var um 15 sjómílur út frá Grindavík, samkvæmt tilkynningu slysavarnarfélagsins. Ferðin gekk vel og var sjúklingnum komið undir læknishendur þegar komið var til baka til Grindavíkur um klukkan 4:00.