Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Björgunarmenn í verkefnum við gosstöðvarnar fái góðan mat milli vakta
Meðfylgjandi mynd var tekin við undirskrift samningsins á henni eru Pálmi Vilhjálmsson forstjóri Mjólkursamsölunar og Kristján Þór Harðarson framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Þriðjudagur 20. apríl 2021 kl. 11:23

Björgunarmenn í verkefnum við gosstöðvarnar fái góðan mat milli vakta

- Mjólkursamsalan er nýr aðalstyrktaraðili Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur átt í góðu samstarfi við Mjólkursamsöluna undanfarin ár og notið stuðnings í formi vöruúttekta þegar sjálfboðaliðar félagsins sinna tímafrekum útköllum og fjáröflunum. Nú hafa hafa félögin stigið skrefinu lengra og undirritað samstarfssamning, þar með bætist Mjólkursamsalan við öflugan hóp aðalstyrktaraðila og styður með myndarlegum hætti starf mörg þúsund sjálfboðaliða.

Mannaflsfrekar aðgerðir við gosstöðvar á Reykjanesi

Mikið hefur mætt á sjálfboðaliðum Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá því jörð fór að skjálfa af krafti á Reykjanesi og ekki síður eftir að eldgos í Geldingardölum hófst. Undanfarnar fjórar vikur hafa um 1.000 sjálfboðaliðar frá björgunarsveitum, af nánast öllu landinu, lagt sitt af mörkum til að tryggja öryggi ferðafólks við gosstöðvarnar. Margir hópar sjálfboðaliða hafa staðið vaktina og oftar en ekki hafa vaktir verið mannaðar allan sólarhringinn. Við þessar aðstæður hefur það sýnt sig enn og aftur að gott samstarf Slysavarnafélagsins Landsbjargar við fyrirtæki eins og Mjólkursamsöluna er nauðsynlegt til að tryggja að félagið geti sinnt sínu hlutverki, segir í tilkynnningu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Sá stuðningur sem við finnum fyrir í samfélaginu er okkur ómetanlegur. Við gætum ekki leyst verkefni okkar án stuðnings sem við fáum frá almenningi og fyrirtækjunum í landinu. Þess vegna er framtak Mjólkursamsölunnar til fyrirmyndar og okkur hlakkar til að eiga áfram gott samstarf við MS í framtíðinni“ sagði Kristján Þór Harðarson framkvæmdastjóri félagsins.

Félagar í Slysavarnadeildinni Þórkötlu í Grindavík hafa alveg frá upphafi goss séð til þess að allir björgunarmenn í verkefnum við gosstöðvarnar fái góðan mat milli vakta og séu vel nestaðir. Þar kom Mjólkursamsalan, eins og fjölmörg önnur fyrirtæki, myndarlega að borðinu og hefur lagt til vörur og hráefni. Umfang samstarfsins varð til þess að ákveðið var að festa enn frekar í sessi samstarfið og þróa það áfram.

„Mjólkursamsalan leggur mikla áherslu á stuðning við fjölda samfélagsverkefna og er fyrirtækið stoltur styrktaraðili Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Við hvetjum bæði starfsfólk okkar og aðra landsmenn til að styðja við starf Landsbjargar með því að gerast Bakverðir björgunarsveitanna enda starf þeirra bæði einstakt og nauðsynlegt“ segir Guðný Steinsdóttir, markaðsstjóri MS.

Það er von beggja aðila að samningurinn festi í sessi það ánægjulega samstarf sem verið hefur undanfarin ár og þannig leggi Mjólkursamsalan sitt lóð á vogaskálarnar að tryggja fumlaus viðbrögð sjálfboðaliða í Slysavarnafélaginu Landsbjörg þegar neyð ber að höndum.