Björgunarbílar sendir til Reykjavíkur til að sækja lækna
Björgunarsveitin Suðurnes hefur fengið beiðni um að senda björgunarbifreiðar til á höfuðborgarsvæðið til að sækja lækna fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Mikil ófærð er nú á höfuðborgarsvæðinu og læknarnir treysta sér ekki á einkabílum til Keflavíkur. Á Suðurnesjum er hins vegar þýða og bylurinn frá því í morgun heyrir sögunni til.