Bygg
Bygg

Fréttir

Björguðu manni úr reykjarkófi
Laugardagur 31. maí 2008 kl. 14:13

Björguðu manni úr reykjarkófi



Lögreglumenn í Grindavík björguðu manni út úr húsi í morgunsárið en þar hafði verið tilkynnt um eld. Hann var sofandi í stofunni þegar lögregla kom aðvífandi og mikill reykur í íbúðinni en þeir brutu rúðu í svalahurð til að komast að manninum og bjarga honum út.

Kom í ljós að reykurinn átti upptök sín í eldhúsi þar sem húsræaðandi hafði sofnað út frá eldamennsku.

Viðkomandi var fluttur á sjúkrahús til skoðunar, en slökkviliðið í Grindavík reykræsti íbúðina.

VF-mynd úr safni

Bílakjarninn
Bílakjarninn