Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Bjóða viðskiptavinum að skipta út plastpokum fyrir fjölnota poka
Föstudagur 8. september 2017 kl. 10:01

Bjóða viðskiptavinum að skipta út plastpokum fyrir fjölnota poka

- Fyrir hverja þrjá plastpoka fær viðkomandi einn fjölnota

Samkaup hefur ákveðið að bjóða vi​ðskiptavinum sínum að koma með plastpoka í allar verslanir fyrirtækisins og skipta þeim út fyrir fjölnota poka. Átakið fer af stað í dag og verður áberandi í verslunum um land allt.

„Við höfum tekið upp 50.000 fjölnota poka og komið upp sérstökum móttökustöðvum í verslunum okkar. Með því viljum hvetja fólk til að koma með plastpoka til okkar. Fyrir hverja þrjá plastpoka sem fólk skilar inn í verslanir okkar, fær viðkomandi einn fjölnota poka. Við sjáum svo að sjálfsögðu til þess að plastpokarnir fari á réttan stað, beint í endurvinnslu. Með þessu viljum leggja okkar að mörkum við að draga almennt úr notkun plastpoka,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Fjölnota pokarnir munu fást í skiptum fyrir plastpoka meðan birgðir endast. „Í framhaldinu munum við svo hafa fjölnota pokana okkar til sölu og ágóði þeirra rennur í samfélagssjóð Samkaupa sem árlega er nýttur í að styðja við góð málefni.“

Gunnar Egill segir að hugmyndin hafi raunverulega kviknað í kjölfar strandhreinsiátaks sem Nettó hefur unnið í samstarfi við Bláa herinn og Samtök Sveitarfélaga á Suðurnesjum í sumar. „Þar voru strendurnar á Reykjanesi gengnar og rusl tekið upp úr fjörunni. Okkur ofbauð hreinlega magnið. Bara í sumar söfnuðust yfir sex tonn. Við viljum með þessum aðgerðum axla ábyrgð á vandamálinu sem útbreiðsla plastpoka raunverulega er. Það getur til að mynda tekið á bilinu 100 til 500 ár fyrir hefðbundna plastpoka að brotna niður í náttúrunni. Við erum í góðri aðstöðu til þess að reyna að breyta þessu með viðskiptavinum okkar og þess vegna förum við af stað í þetta verkefni núna,“ segir Gunnar Egill.

Samkaup dró úr sorpi frá verslunum um 100 tonn í fyrra og er nú þegar komin langleiðina með sama markmið í ár. Gunnar segir fyrirtækið ætla að halda áfram að sýna gott fordæmi í umhverfisvernd og vill með þessu hvetja enn fleiri verslanir til að gera slíkt hið sama.

Fjölnota pokarnir sem Nettó býður viðskiptavinum sínum í skiptum við þrjá plastpoka