Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Bjóða upp á súpu í Krýsuvík
Krýsuvík nýtur ört vaxandi vinsælda hjá ferðamönnum og var nýlega nefnd Landmannalaugar Íslands
Fimmtudagur 6. ágúst 2015 kl. 09:50

Bjóða upp á súpu í Krýsuvík

-ört vaxandi ferðamannastaður

Nú geta ferðamenn gætt sér á súpu í Krýsuvík en staðurinn nýtur ört vaxandi vinsælda hjá ferðamönnum og hefur Jónína Gunnarsdóttir fengið leyfi til þess að reka þar súpubílinn Farmer´s Soup til reynslu í tvo mánuði.

Þetta kemur fram á mbl.is í dag en Jónína hafði áður verið með súpubílinn á Skólavörðuholti. Þeim hafði verið úthlutað plássi gegnt Hörpu í sumar en sala þar hafði reynst dræm þar sem staðsetningin var að þeirra sögn ekki eins góð. Þau gripu því tækifærið þegar þau fengu leyfi til þess að selja við Krýsuvík með stuttum fyrirvara.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024