Fréttir

Bjóða upp á fría blóðsykursmælingu
Þriðjudagur 14. nóvember 2017 kl. 09:25

Bjóða upp á fría blóðsykursmælingu

- um næstu helgi

Næstkomandi helgi  mun Lions á Suðurnesjum standa fyrir sinni árlegu blóðsykurmælingu í samvinnu við Lyfju.

Mælingar verða í Grindavík föstudaginn 17. nóvember frá kl. 13 -16 í Nettó, í Vogunum verða mælingar á laugardaginn að Iðndal 2 frá kl. 15-17  og í Reykjanesbæ í Nettó, Krossmóa 4 frá kl. 13-16.
Mælingin er hluti af landsátaki Lionshreyfingarinnar og vitundarvakningu um sykursýki.

Nóvember ár hvert er mánuður sykursýkisvarna hjá Lions. Þá bjóða Lionsklúbbar víðs vegar um land upp á fría blóðsykurmælingu. Markmiðið er að vekja almenning til umhugsunar um hættuna sem getur stafað af því að ganga með dulda sykursýki.

Mælingin er öllum að kostnaðarlausu og viljum við hvetja alla bæjarbúa til að nýta sér þessa þjónustu Lions og Lyfju.
 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024