Bjóða upp á fría blóðsykursmælingu
- um næstu helgi
Næstkomandi helgi mun Lions á Suðurnesjum standa fyrir sinni árlegu blóðsykurmælingu í samvinnu við Lyfju.
Mælingar verða í Grindavík föstudaginn 17. nóvember frá kl. 13 -16 í Nettó, í Vogunum verða mælingar á laugardaginn að Iðndal 2 frá kl. 15-17 og í Reykjanesbæ í Nettó, Krossmóa 4 frá kl. 13-16.
Mælingin er hluti af landsátaki Lionshreyfingarinnar og vitundarvakningu um sykursýki.
Nóvember ár hvert er mánuður sykursýkisvarna hjá Lions. Þá bjóða Lionsklúbbar víðs vegar um land upp á fría blóðsykurmælingu. Markmiðið er að vekja almenning til umhugsunar um hættuna sem getur stafað af því að ganga með dulda sykursýki.
Mælingin er öllum að kostnaðarlausu og viljum við hvetja alla bæjarbúa til að nýta sér þessa þjónustu Lions og Lyfju.