Bygg
Bygg

Fréttir

Bjóða milljónir í fundarlaun fyrir stolnar tölvur
Lögreglan hefur birt mynd af tölvu eins og þeim sem var stolið.
Sunnudagur 25. mars 2018 kl. 19:39

Bjóða milljónir í fundarlaun fyrir stolnar tölvur

Eigendur tölvubúnaðar sem stolið var úr gagnaveri á Suðurnesjum fyrir nokkrum vikum, heita 6 milljónum íslenskra króna í fundarlaun til þess sem getur veitt áreiðanlegar upplýsingar um hvar búnaðinn er að finna.
 
Þeir sem búa yfir upplýsingum um málið eru hvattir til að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma: 8320253.
 
Ábendingar um búnaðinn þurfa að berast fyrir 12.apríl 2018.
 
Fundarlaunin verða greidd til þess sem lögreglyfirvöld staðfesta að hafi fyrstur komið á framfæri ábendingu um hvar búnaðinn er að finna. Gætt verður fyllsta trúnaðar við þá sem veita lögreglu upplýsingar um málið.
 
Lögfræðistofa sem fer með málið fyrir hönd eigenda búnaðarins sér um að annast greiðslu fundarlauna.
Bílakjarninn
Bílakjarninn