Bjartviðri og hlýindi í dag
Faxaflói - Veðurhorfur til kl. 18 á morgun
Norðvestan og vestan 3-5. Þokuloft í fyrstu og í nótt en annars bjartviðri. Hiti 10 til 19 stig.
Spá gerð 09.07.2007 kl. 06:29
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag og fimmtudag: Hæg austlæg átt og víð bjart veður, en sums staðar þokubakkar með norður- og austurströndinni. Yfirleitt hlýtt, einkum inn til landsins. Á föstudag og laugardag: Norðaustanátt, rigning norðaustanlands, en þurrt og bjart suðvestantil. Hiti 6 til 16 stig, hlýjast suðvestanlands. Á sunnudag og mánudag: Norðanátt með vætu norðan- og austanlands en þurru veðri suðvestantil. Hiti 5 til 14 stig.
Spá gerð 09.07.2007 kl. 08:42
Af www.vedur.is
VF-mynd/Þorgils - Séð yfir skrúðgarðinn í Keflavík í morgun