Bjartviðri í dag, fyrsta vetrardag
Klukkan 6 var norðlæg átt 5-15 m/s, hvassast við norðurströndina og á annesjum vestanlands. Norðantil á landinu var dálítil snjókoma eða él, en léttskýjað syðra. Hiti var frá 5 stigum í Vestmannaeyjum og Seley niður í 4 stiga frost við Búrfell.
Veðurhorfur við Faxaflóa í dag, fyrsta dag vetrar: Norðaustan 5-10 m/s og bjartviðri. Hiti 0 til 5 stig í dag, en 0 til 5 stiga frost í nótt.
Af vef veðurstofunnar