Bjartviðri framundan
Klukkan 9 var norðlæg átt á landinu, 5-13 m/s og dálítil slydda eða él á norðanverðu landinu, en bjart syðra. Hlýjast var 7 stiga hiti á Fagurhólsmýri, en kaldast 2ja stiga frost á Grímsstöðum.
Veðurhorfur við Faxaflóa til kl. 18 á morgun:
Norðaustan 5-10 m/s og bjart, en hægari í nótt og á morgun. Hiti 1 til 6 stig að deginum, en vægt frost að næturlagi.