Bjartviðri á morgun
Norðlæg átt 5-10 m/s. Skýjað með köflum og stöku skúrir, en bjartviðri á morgun. Hiti 2 til 8 stig.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Norðlæg átt 5-10 m/s, en heldur hægari á morgun. Skýjað með köflum eða bjartviðri og yfirleitt þurrt. Hiti 2 til 8 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Norðvestan 8-15 m/s við austurströndina, annars hæg breytileg átt. Stöku skúrir eða slydduél norðaustantil, en bjartviðri í öðrum landshlutum. Hiti 1 til 8 stig að deginum, hlýjast syðst. Víða næturfrost, einkum í innsveitum.
Á fimmtudag:
Suðvestlæg átt, víða 5-10 m/s. Bjartviðri á austanverðu landinu en dálítil rigning vestantil síðdegis. Hiti 3 til 10 stig.
Á föstudag:
Suðaustlæg átt, 8-13 SV-til, en annars 3-8. Rigning með köflum og milt veður.
Á laugardag:
Austan og norðaustanátt, hvassast á Vestfjörðum. Rigning með köflum og heldur kólnandi.
Á sunnudag:
Útlit fyrir norðaustanátt með vætu fyrir norðan og kólnandi veðri.