Bygg
Bygg

Fréttir

Bjart og úrkomulaust í dag
Sunnudagur 9. október 2005 kl. 13:26

Bjart og úrkomulaust í dag

Á hádegi var norðaustanátt á landinu, 8-13 m/s víðast hvar. Él um landið norðanvert, sums staðar dálítil væta um landið sunnanvert, en léttskýjað á Suðvesturlandi. Hiti frá 7 stigum niður í 2 stiga frost, hlýjast á Fagurhólsmýri, en kaldast í innsveitum norðaustantil.

Veðurhorfur við Faxaflóa til kl. 18 á morgun:

Norðaustan 8-13 m/s, en 10-15 vestantil síðdegis. Bjart og þurrt að mestu. Hiti 0 til 5 stig, en í kringum frostmark í nótt.
Bílakjarninn
Bílakjarninn