Bjart og svalt
Veðurspá dagins fyrir Faxaflóasvæðið: Hæg norðlæg eða breytileg átt og léttskýjað, en vestan og suðvestan 5-10 m/s og dálítil rigning með köflum. Hiti 3 til 8 stig, en vægt frost í uppsveitum í nótt.?
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu:
Hægviðri og léttskýjað, en vestan 5-10 m/a á morgun og dálítil rigning með köflum. Hiti 3 til 7 stig.?
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á þriðjudag:?
Suðvestan og vestan 5-10 m/s og stöku skúrir, en víða léttskýjað á austanverðu landinu. Hiti 3 til 9 stig.
Á miðvikudag og fimmtudag:
Norðlæg eða breytileg átt, 5-10 m/s, en heldur hvassari við A-ströndina. Stöku él eða slydduél norðantil á landinu, en annars skýjað að mestu og yfirleitt þurrt. Hiti 0 til 7 stig, hlýjast S-lands, en vægt frost inn til landsins. ??
Á föstudag:?
Norðaustlæg átt með ofankomu í flestum landshlutum og kalt í veðri. ??
Á laugardag:?
Norðlæg átt, skýjað með köflum og él á stöku stað. Kalt í veðri, einkum N-lands. ??Á sunnudag:?Útlit fyrir austlæga átt með éljum, en skúrum syðst. Heldur hlýnandi veður.