Bjart næstu daga - og gosmóða
Veðurspáin fyrir daginn hljóðar upp á norðaustan 5-10 og bjart með köflum. Hiti 8 til 14 stig. Næstu dagar hljóða upp á sama veður, norðaustan og 5-10 metra á sekúndu.
Í dag mun mengun frá eldgosinu í Holuhrauni liggja yfir Faxaflóa en á morgun sýna spár að mengunin muni liggja yfir Reykjanesskaganum.