Bjart í dag - þykknar upp á morgun
	Norðvestan 5-10 og bjart veður. Þykknar upp á morgun, suðaustan 13-18 og rigning síðdegis. Hiti 2 til 10 stig.
	
	Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
	
	Norðvestan 8-13 og bjart veður, hægari í kvöld. Vaxandi suðaustanátt á morgun, 13-18 og rigning síðdegis. Hiti 5 til 10 stig, en 1 til 4 í nótt.
	
	
	Veðurhorfur á landinu næstu daga
	
	Á fimmtudag:
	Norðaustan og norðan 10-15 m/s, en suðvestan 8-13 SA-til. Rigning víða um land og hiti 3 til 12 stig, mildast S-til.
	
	Á föstudag:
	Norðvestan 8-10 m/s NA-lands, en annars hægari og skúrir víða á landinu. Gengur í suðaustan 8-13 með rigningu SV-lands undir kvöld. Hiti 5 til 10 stig.
	
	Á laugardag:
	Snýst í norðlæga átt með rigningu, en slyddu fyrir norðan. Kólnar í bili.
	
	Á sunnudag og mánudag:
	Breytilegar áttir, skúrir og milt veður að deginum.
	 


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				