Bygg
Bygg

Fréttir

Bjarni gagnrýnir stjórnvöld í máli SpKef
Fimmtudagur 28. júlí 2011 kl. 14:00

Bjarni gagnrýnir stjórnvöld í máli SpKef

Stofnun SpKef var algert klúður frá upphafi, segir Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins. Hann vill að fjármálaráðherra birti nýtt mat á virði eigna sparisjóðsins og svari því hvers vegna enn vanti um tuttugu milljarða svo að eignirnar standi undir sér en Bjarni fer mikinn um málið í grein sinni í Morgunblaðinu í dag. Þar segir hann m.a Steingrím J. Sigfússon vera í algerri afneitun varðandi málefni SpKef og mögulegs kostnaðar ríkisins í tengslum við að tryggja innistæður sparisjóðsins.

Í apríl í fyrra var SpKef stofnaður úr rústum Sparisjóðs Keflavíkur með aðstoð stjórnvalda. Til að byrja með var talið að eignir sparisjóðsins myndu að mestu greiða framlag ríkissjóðs til baka en í febrúar kom í ljós að um ellefu milljarða vantaði upp á til að SpKef stæðist kröfur Fjármálaeftirlitsins. Hann segir það löngu orðið ljóst að eignir SpKef hafi verið stórlega ofmetnar en nú bendi hins vegar margt til þess að við höfum aðeins séð toppinn á ísjakanum.

Ákveðið var að sameina SpKef Landsbankanum. Landsbankinn verðmat eignir sjóðsins og í fréttum hefur verið greint frá því að þar skeiki allt að tuttugu milljörðum. Eignirnar hafi því verið vanmetnar og SpKef vanti um þrjátíu milljarða til að standast verðmat fjármálaráðuneytisins.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Bjarni gagnrýnir vinnubrögð ríkisstjórnarinnar í þessu máli harðlega og segir þær klúður. Það hafi eitthvað meiriháttar farið úrskeiðis í þessum aðgerðum þegar menn koma á fót fyrirtæki árið 2010 sem er svo komið í rúmlega þrjátíu milljarða króna halla rúmu ári síðar. Bjarni vill jafnframt að fjármálaráðherra upplýsi um nýtt verðmat Landsbankans. Upphaflega hafi verið gefnar yfirlýsingar um að ríkið myndi komast skaðlaust frá þessu.

Bjarni veltir þar einnig upp þeim spurningum hvernig það megi vera að tæpum þremur árum eftir að sparisjóðurinn komst í vandræði skeiki hvað eftir annað tugum milljarða við mat á virði eigna? Hver ber ábyrgð á þeim mistökum?

Síðar hafi því verið haldið fram að það væri búið að ná utan um vandann með því að ríkið legði þessum innstæðum til ellefu milljarða til þess að þær yrðu tryggðar.

Bjarni segist því fara fram á að fá þetta mál upp á borðið og að þörf sé á ítalegri rannsókn og það sé brýn nausyn að fara vandlega ofan í saumana á aðkomu stjórnvalda að málefnum Sparisjóðs Keflavíkur allt frá árinu 2008.