Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Bjarney skipuð aðalvarðstjóri
Fimmtudagur 7. nóvember 2013 kl. 16:03

Bjarney skipuð aðalvarðstjóri

Ríkislögreglustjóri hefur skipað Bjarneyju S. Annelsdóttur aðalvarðstjóra við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum. Hún var metin hæfust af 15 umsækjendum og er skipuð til fimm ára frá og með 6. nóvember 2013.

Bjarney er önnur konan sem er skipaður aðalvarðstjóri innan lögreglunnar, en í fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra starfar Friðgerður B. Jónsdóttir og er hún fyrsta konan sem skipuð var aðalvarðstjóri í lögreglu ríkisins.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Bjarney er skipuð til fimm ára frá og með 6. nóvember.