Bjargar mörgum heimilum og einstaklingum frá gjaldþroti
„Þetta skiptir gríðarlega miklu máli og kemur til með að hafa mjög mikil áhrif fyrir fjölda fólks og heimila. Ég veit um marga sem ætluðu að gera sig gjaldþrota út af stofnfjárlánum sínum,“ sagði Þórunn Einarsdóttir, formaður samtaka stofnfjáreigenda í Spkef en Landsbankinn mun fella niður nær öll lán til 500 einstaklinga og lögaðila vegna stofnfjárkaupa í Sparisjóðnum í Keflavík, Sparisjóði Húnaþings og Stranda og Sparisjóði Vestfirðinga síðla árs 2007.
Með þessum ákvörðunum Landsbankans verður endir bundinn á óvissu í málum þeirra einstaklinga og lögaðila sem fengu lán til kaupa á stofnfé í fyrrnefndum sparisjóðum í árslok 2007. „Það var maður hjá mér í vikunni með tárin í augunum. Ég held að það geri sér ekki allir grein fyrir því hvað þessi ákvörðun bankans hefur mikil áhrif hér á Suðurnesjum og víðar,“ sagði Þórunn.
Þann 24. nóvember 2011 dæmdi Hæstiréttur Íslands í málum vegna aukningar stofnfjár í Byr sparisjóði og Sparisjóði Norðlendinga í lok árs 2007. Niðurstaðan fól í sér að stofnfjáreigendur voru sýknaðir af kröfum um greiðslu lána sem veitt voru til kaupa á stofnfé í sparisjóðunum við stofnfjáraukningu þeirra. Landsbankinn hf. hefur farið yfir dóma Hæstaréttar með tilliti til þeirra lána sem bankinn er kröfuhafi að í dag og veitt voru til kaupa á nýju stofnfé í Sparisjóðnum í Keflavík, Sparisjóði Húnaþings og Stranda og Sparisjóði Vestfirðinga í lok árs 2007, áður en þeir voru sameinaðir undir merkjum Sparisjóðsins í Keflavík.
Með vísan til niðurstöðu í áðurnefndum dómum mun Landsbankinn fella flest þessara lána niður að eigin frumkvæði.
Með þessum ákvörðunum Landsbankans verður endir bundinn á óvissu í málum þeirra einstaklinga og lögaðila á landsbyggðinni sem fengu lán til kaupa á stofnfé í fyrrnefndum sparisjóðum í árslok 2007. Jafnframt felur þessi niðurstaða í sér viðurkenningu á því að ráðgjöf til kaupenda vegna þessarar stofnfjáraukningar hafi af hálfu viðkomandi sparisjóða verið ýmist röng eða ófullnægjandi. Þórunn segir að starf samtakanna hafi skipt miklu máli en lögmaður þeirra sem og stjórnarmenn hafa unnið hart í þessu máli og fundað stíft með forráðamönnum bankans og fjármálaeftirlitinu.
Þórunn segir málinu þó ekki lokið og því verði haldið áfram. Unnið verði í málum fólks sem t.d. staðgreiddi sitt stofnfé því ekki fengu allir lán fyrir því sem það keypti. Því skipti máli að þeir sem eru ekki skráðir í samtökin og hafa þar af leiðandi ekki greitt 4000 kr. gjald sem rennur allt í lögfræðistörf samtakanna, geri það.
„Heildarniðurstaðan í þessu máli er sú að fólk sem keypti stofnfé, keypti gallaða vöru og á því að fá hana endurgreidda, hvort sem það var með láni eða ekki. Þessi ákvörðun bankans að fella niður lánin er góð jólagjöf og kemur til með að bjarga mörgum heimilum frá gjaldþroti“.