Sjómannakveðjur 3
Sjómannakveðjur 3

Fréttir

Birgitta stefnir í 7. sæti
Föstudagur 14. febrúar 2014 kl. 15:28

Birgitta stefnir í 7. sæti

- í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ

Birgitta Jónsdóttir Klasen hefur ákveðið að bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins i Reykjanesbæ þann 1. mars 2014 vegna sveitarstjórnarkosninga, sem fram fara í vor. Hún óskar eftir stuðningi þínum í 7. sætið.

Birgitta fluttist til Íslands fyrir tólf árum frá Þýskalandi, en hún hefur verið viðloðandi og starfandi við stjórnmál í Þýskalandi síðan árið 1978 og hefur áhuga á því að halda áfram á þeirri braut hér á landi. 

Helstu baráttumál Birgittu eru fjölskyldu-, félags- og heilbrigðismál auk þess sem hún ber hag eldri borgara og barnafjölskyldna mjög fyrir brjósti. Velferðin skiptir okkur öll máli! 

Kosningaskrifstofa er opin frá kl. 16.00 til 18.00 mánudaga til föstudaga að Hafnargötu48a. Kaffi og konfekt í boði.

Bílakjarninn
Bílakjarninn