HSS
HSS

Fréttir

Bíræfnir olíuþjófar handteknir
Föstudagur 10. maí 2013 kl. 13:29

Bíræfnir olíuþjófar handteknir

Lögreglan á Suðurnesjum handtók í fyrradag tvo tæplega tvítuga karlmenn sem játuðu stórfelldan þjófnað á olíu úr vinnuvélum og vörubifreiðum vítt og breitt í umdæminu á undanförnum mánuðum. Þeir höfðu einnig látið greipar sópa í fleiri umdæmum.

Annar mannanna reyndist vera með litaða olíu á einkabifreið sinni og varð það til þess að margítrekuð brot mannanna komust upp og hafa þeir játað sök. Höfðu þeir í flestum tilvikum verið saman við að stela eldsneytinu. Til þess notuðu þeir nokkra brúsa og slöngu til að sjúga olíuna upp. Er talið að mest hafi þeir náð að stela um 180 lítrum í einni ferð, en í flestum hinna tilvikanna um 100 lítrum í hvert sinn.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Þeir tíðu olíuþjófnaðir sem tilkynntir hafa verið til lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum misserum teljast því upplýstir.