Bílvelta við Seltjörn
Pallbifreið valt við Seltjörn í morgun, en mikil hálka var á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi í morgun. Engin slys urðu á fólki en bifreiðin er töluverð skemmd. Margar bifreiðar eru enn á sumardekkjum og virðist sem hálkan í nótt og morgun hafi komið mörgum í opna skjöldu. Strax í morgun urðu starfsmenn Hjólbarðaþjónustu Gunna Gunn ehf. áþreifanlega varir við hálkuna og töluvert hefur verið að gera hjá þeim í morgun.
VF-ljósmynd/JKK: Bifreiðin er ekki mikið skemmd.