Föstudagur 12. maí 2006 kl. 19:05
Bílvelta á Reykjanesbraut

Jeppi valt á Reykjanesbraut núna síðdegis. Lögregla vinnur að skýrslu um málið þannig að fréttir eru óljósar en tveir bílar munu hafa átt hlut að máli og höfnuðu þeir báðir utan vegar. Minnihláttar slys urðu á fólki, að sögn lögreglu, en við aðkomu að slysinu þótti ástæða til að kalla út tvo sjúkrabíla og einn tækjabíl slökkviliðsins. Báðir bílarnir eru mikið skemmdir.
VF-mynd: Ellert Grétarsson