Föstudagur 8. febrúar 2008 kl. 11:50
Bílvelta á Reykjanesbraut

Bílvelta varð á Reykjanesbraut á Strandarheiði klukkan 6 í morgun þegar ökumaður jeppa missti vald á honum vegna hálku á veginum. Tveir í bílnum og voru báðir fluttir á slysadeild. Meiðsli þeirra eru talin vera minniháttar. Fjarlægja varð jeppann með dráttarbifreið af vettvangi.
Lögreglumenn stöðvuðu akstur ökumanns bíls í Reykjanesbæ í gærkvöldi og er maðurinn grunaður um akstur undir áhrifum. Þá var einn ökumaður stöðvaður fyrir að aka bifreið sviptur ökuréttindum