Bílvelta á Hafnavegi
Um klukkan hálf átta í gærmorgun fékk lögregla tilkynningu um bílveltu og slys á fólki á Hafnavegi við Ósabotna. Lögregla og sjúkrabifreið frá Brunavörnum Suðurnesja fór á vettvang en ökumaður fólksbifreiðarinnar hafði misst stjórn bifreiðinni í mikilli hálku með þeim afleiðingum að bifreiðin hafnaði utan vegar á hliðinni. Farþegi í bifreiðinni var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.
Í nótt voru síðan ellefu bifreiðar boðaðar í skoðun í umdæmi lögreglunnar í Keflavík.
Í nótt voru síðan ellefu bifreiðar boðaðar í skoðun í umdæmi lögreglunnar í Keflavík.