Miðvikudagur 28. janúar 2015 kl. 08:52
Bílvelta á Grindavíkurvegi
- einn fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar.
Einn var fluttur til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir að bifreið sem hann ók valt á Grindavíkurvegi á níunda tímanum. Að sögn lögreglu lítur ekki út fyrir að ökumaður, sem var einn í bílnum, sé mikið slasaður. Einhverjir hálkublettir voru á veginum og dimmt.