Bílvelta á Grindavíkurvegi
Ökumaður og þrír farþegar voru fluttir með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar eftir bílveltu sem varð á Grindavíkurvegi kl. 17:30 í gær. Fólkið er ekki sagt vera alvarlega slasað.
Að sögn vegfaranda var fljúgandi hálka á Grindavíkurvegi og víða á Reykjanesbraut á þessum tíma.
Meðfylgjandi myndir tók Hilmar Bragi Bárðarson á vettvangi.