Bygg
Bygg

Fréttir

Bílvelta á Garðskagavegi
Laugardagur 1. nóvember 2008 kl. 11:16

Bílvelta á Garðskagavegi

Bílvelta varð á Garðaskagavegi í gærdag sunnan við golfvöllinn í Leirunni. Ökumaðurinn slapp lítið meiddur en að sögn lögreglu var það öryggisbeltinu að þakka.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu komu vegfarendur að og aðstoðuðu ökumanninn. Þeir veittu því athygli að minnsta kosti þrem bifreiðum var ekið fram hjá vettvangi án þess að gefa ökumanninum gaum en hann hékk hálfur út úr bifreiðinni, sem var á hvolfi, fastur í öryggisbelti. Ökumaðurinn var flutt á HSS með sjúkrabifreið.

Bílakjarninn
Bílakjarninn